Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
Ný bæjarstjórn Vestmannaeyja ásamt bæjarstjóra og bæjarritara. Kjartan Vídó Ólafsson, varabæjarfulltrúi sat fundinn í fjarveru Trausta Hjaltasonar. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar Vestmannaeyja sem haldinn var í Ráðhúsinu nýverið var kosið í embætti forseta bæjarstjórnar, varaforseta og skrifara auk þess sem skipað var í ráð, nefndir og stjórnir á vegum Vestmannaeyjabæjar fyrir nýtt kjörtímabil.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir var kjörin forseti bæjarstjórnar með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa. Eyþór Harðarson var kjörinn varaforseti, einnig með níu samhljóða atkvæðum. Skrifarar bæjarstjórnar voru kosnir Óskar Jósúason og Jón Þór Guðjónsson en varaskrifarar Aníta Jóhannsdóttir og Arndís María Kjartansdóttir.

Jafnframt var gengið frá skipan í helstu ráð og nefndir sveitarfélagsins. Í bæjarráði sitja Eyþór Harðarson sem formaður, Trausti Hjaltason sem varaformaður og Jón Þór Guðjónsson. Arndís María Kjartansdóttir verður áheyrnarfulltrúi Eyjalistans í ráðinu.

Í fjölskyldu- og tómstundaráði verður Kjartan Vídó Ólafsson formaður, í fræðsluráði Aníta Jóhannsdóttir og í umhverfis- og skipulagsráði Hildur Sólveig Sigurðardóttir. Þá var Hannes Kristinn Sigurðsson kjörinn formaður framkvæmda- og hafnarráðs.

Jafnframt var skipað í fjölda ráða, nefnda og stjórna á vegum sveitarfélagsins fyrir kjörtímabilið 2026–2030.

Allar tillögur um skipan í ráð, nefndir og stjórnir voru samþykktar samhljóða af bæjarfulltrúum. Með því liggur fyrir hvernig helstu stjórnir og nefndir sveitarfélagsins verða skipaðar á kjörtímabilinu 2026–2030. Sjá má skipun fastanefnda hér að neðan.

Bæjarráð

Aðalmenn

  • Eyþór Harðarson, formaður (D)
  • Trausti Hjaltason, varaformaður (D)
  • Jón Þór Guðjónsson (M)

Áheyrnarfulltrúi

  • Arndís María Kjartansdóttir (E)

Fjölskyldu- og tómstundaráð

Aðalmenn

  • Kjartan Vídó Ólafsson, formaður (D)
  • Hildur Rún Róbertsdóttir, varaformaður (E)
  • Þóra Guðný Arnarsdóttir (D)
  • Guðríður Jónsdóttir (D)
  • Jóhann Ingi Óskarsson (M)

Fræðsluráð

Aðalmenn

  • Aníta Jóhannsdóttir, formaður (D)
  • Eyrún Haraldsdóttir, varaformaður (E)
  • Óskar Jósúason (D)
  • Rannveig Ísfjörð (D)
  • Sonja Andrésdóttir (M)

Umhverfis- og skipulagsráð

Aðalmenn

  • Hildur Sólveig Sigurðardóttir, formaður (D)
  • Linda Rós Sigurðardóttir, varaformaður (M)
  • Auðunn Haraldsson (D)
  • Ármann Halldór Jensson (D)
  • Jessý Friðbjarnardóttir (E)

Framkvæmda- og hafnarráð

Aðalmenn

  • Hannes Kristinn Sigurðsson, formaður (D)
  • Sæunn Magnúsdóttir, varaformaður (M)
  • Garðar Benedikt Sigurjónsson (D)
  • Guðbjörg Sól Sindradóttir (D)
  • Erlingur Guðbjörnsson (E)

Nýjustu fréttir

Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.