TM mótið hefst á morgun
Frá TM mótinu 2025. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Hið árlega TM mót í Vestmannaeyjum hefst á morgun, fimmtudag, og mun standa fram yfir laugardag. Mótið hefur verið haldið ár hvert frá 1990 og er það 5. flokkur kvenna í fótbolta sem keppir á mótinu. Keppt verður á fjórum völlum á mótinu í ár, Týsvelli, Þórsvelli, Herjólfshöll og Hásteinsvelli. Fyrstu leikir hefjast kl. 08:20 á morgun og síðustu leikirnir kl. 17:00. 

Ýmis afþreying verður í boði fyrir stelpurnar á mótinu. Á fimmtudeginum verður sjálf setning mótsins og hæfileikakeppni í Íþróttahúsinu. Á föstudeginum fer fram leikur landsliðs og pressuliðs á Hásteinsvelli og þar á eftir kvöldvaka í íþróttahúsinu, þar sem úrslit í hæfileikakeppninni verða kynnt. Á laugardeginum verða bikarúrslitaleikir, úrslitaleikur um TM mótsbikarinn og að lokum grillveisla við Týsheimilið að loknum úrslitaleikjum. 

Hægt er að sjá alla dagskrá mótsins hér.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.