Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Kjarnaborun í holu EG-01 á Eiðinu er lokið og nú færist rannsóknarverkefni Eyjaganga yfir á Landeyjasand þar sem næsta rannsóknarhola verður boruð. Ljósmynd/Eyjagöng.

Kjarnaborun í rannsóknarholu Eyjaganga á Eiðinu í Vestmannaeyjum er nú lokið og undirbúningur fyrir næsta áfanga verkefnisins hafinn. Þetta kemur fram í nýrri frétt á vef Eyjaganga.

Samkvæmt upplýsingum frá Eyjagöngum hefur rannsóknarholan EG-01 skilað mikilvægu efni og gögnum um jarðlög á svæðinu sem nýtast munu við áframhaldandi undirbúning og hönnun mögulegra ganga milli lands og Eyja.

Næst verður hafist handa við rannsóknarholu EG-02 á Landeyjasandi. Kjarnaborinn Karl Prins hefur þegar verið fluttur frá Vestmannaeyjum og verður honum komið fyrir á nýjum borstað við ströndina á Landeyjasandi þar sem rannsóknir halda áfram.

Í frétt Eyjaganga kemur fram að Benedikt Óskar Steingrímsson hjá Völubergi hafi sent inn mynd sem sýnir staðsetningu næstu borholu, sem verður staðsett skammt frá strandlengjunni á Landeyjasandi.

Rannsóknarboranirnar eru hluti af undirbúningsvinnu vegna mögulegra Eyjaganga og er gert ráð fyrir að niðurstöður þeirra veiti mikilvægar upplýsingar um jarðfræðilegar aðstæður á fyrirhugaðri leið.

Nýjustu fréttir

Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
ÍBV og KA skildu jöfn á Hásteinsvelli
Laxey boðar til samráðs- og upplýsingafundar
Djamm Original heldur í hefðirnar  – Frá Bridgerton í aldamótastuð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.