Páskaball í Höllinni í kvöld

Hið árlega páskaball fer fram í Höllinni í kvöld, laugardaginn 4. apríl og hefst kl 23:00. Að þessu sinni koma fram tónlistarmennirnir Aron Can, Daniil og Ízleifur, auk DJ sem sér um tónlistina yfir kvöldið. Búast má við góðri mætingu eins og síðastliðin ár, en ballið er orðinn fastur liður í skemmtanalífi Eyjamanna yfir páskana. […]

Framboðslisti kjósenda í Eyjum

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar liggur nú fyrir. Raðað var í öll efstu sæti listans með prófkjöri en 12 efstu sæti listans eru byggð  niðurstöðu gríðarlega vel heppnaðs prófkjörs, þar sem nærri 1200 kjósendur í Eyjum komu að því að stilla frambjóðendum upp á listann með vali sínu í prófkjörinu. 1178 kjósendur skipuðu eiginlega kjörnefnd […]

ÍBV mætir Þrótti í bikarnum

32-liða úrslit Mjólkurbikars karla eru leikin nú um páskana – allir leikirnir nema einn. ÍBV hefur leik í Mjólkurbikarnum í dag þegar liðið tekur á móti Þrótti Reykjavík á Hásteinsvelli. Leikurinn hefst klukkan 12:00 og markar upphaf fyrsta alvöru keppnisleiks Eyjamanna á tímabilinu. Upphitun hefst klukkustund fyrir leik. Undirbúningur liðsins hefur staðið yfir undanfarna mánuði […]

Hörku skákmót hjá TV á skírdag

Sigurjón Þorkelsson varð hraðskákmeistari Vestmannaeyja 2026 þegar Hraðskákmeistaramót Vestmannaeyja fór fram á skírdag í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja (TV). Alls tóku 10 keppendur þátt, tefldar voru níu umferðir og tímamörk voru 5 mínútur á skák auk 3 sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Á árum áður voru 5 mínútur algeng tímamörk í hraðskák, en þá kom oft […]

Tjaldurinn meðal vorboða í Eyjum

Í Vestmannaeyjum er tjaldurinn einn helsti vorboðinn og lætur sjá sig seint í mars eða í byrjun apríl. Þetta er þó breytilegt milli ára og fer eftir veðurlagi. Á mildum vetrum sést hann jafnvel um miðjan mars en í köldum árum getur koma hans dregist fram í apríl. Nú er hann mættur, eins og sjá […]

Bæta á aðgengi og fjölga bílastæðum við Kirkjugerði

Fræðsluráð Vestmannaeyja tekur jákvætt í tillögur um breytingar á umferð við leikskólann Kirkjugerði. Meðal þess sem lagt er til er að opna fyrir einstefnuakstur frá bílastæði leikskólans og út á Hraunveg. Jafnframt eru uppi hugmyndir um að fjölga bílastæðum á svæðinu til að bæta aðgengi. Ráðið telur mikilvægt að ráðast í slíkar úrbætur til að […]

ÍBV semur við serbneskan framherja

Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við serbneska leikmanninn Filip Stuparevic. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum í gær. Filip er 25 ára framherji og kemur með reynslu víða úr Evrópu.  Í tilkynningunni segir ,,Filip hefur meðal annars spilað með FK Vozdovac, FK Metalac, FK Pribram, NK Domzale, Greenock Morton og Motherwell FC. Hann hefur gott orð […]

Metár og hagnaður langt yfir áætlun

default

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja kynnti á síðasta fundi bæjarstjórnar endurskoðaðan ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2025 sem sýnir eina bestu rekstrarniðurstöðu bæjarins í fimmtán ár. Var þetta seinni umræða. Samkvæmt reikningnum var afkoma samstæðu bæjarins, A og B hluta, jákvæð um 781 milljón króna sem er 345 milljónum króna umfram áætlanir. Engar tölulegar breytingar voru gerðar […]

Jón Óli á sínu þriðja ári með konurnar 

Kvennalið ÍBV er mætt aftur í Bestu deildina eftir tveggja ára fjarveru. Þær tryggðu sér sæti meðal þeirra bestu þegar þær rúlluðu yfir Lengjudeildina á síðasta tímabili. Eyjakonur hefja leik í deildinni laugardaginn 25. apríl þegar þær sækja Fram heim á Lambhagavöllinn. Deildin sjálf hefst föstudaginn 24. apríl með leik Íslandsmeistara Breiðabliks og Þróttar R. […]

Elliði Snær og Elmar í eldlínunni í Þýskalandi

2. Bundsliga: HSG Nordhorn-Lingen - TV Großwallstadt 25:25

Eyjamennirnir Elliði Snær Viðarsson og Elmar Erlingsson voru báðir í eldlínunni með sínum félagsliðum í þýska handboltanum í dag. Elliði Snær og félagar hans í Gummersbach unnu Bergischer á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni, 39-30. Elliði Snær skoraði þrjú mörk. Gummersbach er í fjórða sæti deildarinnar með 39 stig. Bergischer er með 14 stig í fimmtánda […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.