Karlalið ÍBV tapaði gegn Víkingum
Úr leik ÍBV og Breiðabliks. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í fótbolta tók á móti Víking R. í sjöundu umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag. Víkingar reyndust sterkari aðilinn í leiknum og unnu 0-2 sigur. 

Eyjamenn spiluðu þéttan og agaðan varnarleik, sérstaklega í fyrri hálfleik. Víkingar voru töluvert meira með boltann en þeir áttu erfitt með að finna opnanir á öguðum varnarleik Eyjamanna. Hvorugu liðinu tókst að setja mark sitt á leikinn í fyrri hálfleik og var staðan 0-0 í hálfleik. 

Víkingar léku með vindinn í bakið í síðari hálfleik og nýttu sér það betur en ÍBV. Fyrsta mark leiksins kom á 51. mínútu þegar Óskar Borgþórsson skallaði boltann í markið eftir fyrirgjöf, staðan 0-1. Víkingar tvöfölduðu forystu sína fimm mínútum síðar þegar Ari i Haraldstovu Petersen, markvörður ÍBV, ætlaði að hreinsa boltann fram en dreif ekki lengra en miðjubogann. Þar tekur Gylfi Þór Sigurðsson á móti boltanum og setur hann í autt markið, rétt fyrir aftan miðju. Lokatölur leiksins 0-2.

Eyjamenn eru enn án sigurs eftir sjö umferðir og eru með eitt stig á botni deildarinnar. Víkingar eru eins og er á toppnum með 19 stig.

Næsti leikur ÍBV er gegn ÍA, á Akranesi, fimmtudaginn 21. maí kl. 18:00

ÍBV 0 – 2 Víkingur R.

0-1 Óskar Borgþórsson (’51)

0-2 Gylfi Þór Sigurðsson (’56)

Leikir dagsins í Bestu deild karla:

16:00 Þór-ÍA 

17:00 FH-KA

17:30 Keflavík-Stjarnan 

18:15 Valur-Breiðablik 

18:15 KR-Fram 

 

Nýjustu fréttir

Alls útskrifuðust 45 nemendur frá FÍV af sex brautum
Kraftmikil önn og árangur nemenda í forgrunni
Halli Geir Evrópumeistari í sjómanni  
Sjórinn var aldrei í plönunum, segir Sigurhanna
Sjómannadags fjör í Höllinni: myndasyrpa
Myndir frá sjómannafjöri á bryggjunni
Skötuveisla sem stendur undir nafni
Íþróttafélagið Ægir fór í keppnisferð til Danmerkur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.