Karlalið ÍBV tapaði gegn Víkingum

Karlalið ÍBV í fótbolta tók á móti Víking R. í sjöundu umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag. Víkingar reyndust sterkari aðilinn í leiknum og unnu 0-2 sigur. Eyjamenn spiluðu þéttan og agaðan varnarleik, sérstaklega í fyrri hálfleik. Víkingar voru töluvert meira með boltann en þeir áttu erfitt með að finna opnanir á öguðum […]
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar síðdegis

Herjólfur ohf. hefur gefið út nýja tilkynningu þar sem fram kemur að siglt verði tvær ferðir til Landeyjahafnar í dag. Annars vegar seinni partinn í dag og hins vegar í kvöld. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 16:00 og 19:30, en ferðin klukkan 16:00 hafði áður verið áætluð til Þorlákshafnar. Frá Landeyjahöfn verður siglt klukkan 18:15 […]
Þórunn Pálsdóttir er Eyjamaður mánaðarins

Samgöngumál lengi verið eitt stærsta hagsmunamál íbúa hér í Eyjum og hafa þau sjaldan verið eins slæm og á síðustu misserum. Fáir hafa þó látið rödd sína heyrast jafn skýrt og Þórunn Pálsdóttir, sem að undanförnu hefur verið ötul í umræðunni um bættar samgöngur milli lands og Eyja. Þórunn hefur vakið athygli fyrir beitta pistla […]
MATEY: Vilhjálmur Sigurðarson með fágaðan og frumlegan seðil á Næs

Vertu með okkur í matarævintýri á Næs á MATEY sjávarréttahátíðinni, þar sem Vilhjálmur Sigurðarson leiðir gesti í gegnum einstaka matarupplifun byggða á íslensku hráefni, árstíðatengingu og djúpri virðingu fyrir bragði og uppruna. Seðill Vilhjálms einkennist af einfaldleika og nákvæmni þar sem hvert hráefni fær að njóta sín. Máltíðin hefst m.a. á reyktum þorskhrognum með sellerírót […]
Leita að fyrsta sigrinum gegn sterku liði Víkinga

ÍBV fær verðugt verkefni í dag þegar Víkingur Reykjavík kemur í heimsókn á Hásteinsvöll í Bestu deild karla. Leikurinn hefst klukkan 13:00 og er hluti af heilri umferð þar sem öll lið deildarinnar eru í eldlínunni. Eyjamenn hafa átt erfitt uppdráttar á fyrstu vikum mótsins og sitja á botni deildarinnar eftir sex umferðir með aðeins […]
Kíkt inn á kosningavökur framboðanna

Spennan var farin að magnast verulega þegar fyrstu tölur höfðu verið kynntar og ljóst að úrslitin í bæjarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum væru að skýrast. Stuðningsmenn framboðanna fylgdust grannt með framvindunni á kosningavökum sínum þar sem fólk ræddi stöðuna, beið eftir næstu tölum og fylgdist með úrslitunum berast inn. Kosningavaka Sjálfstæðisflokksins fór fram í Akóges, Miðflokkurinn hélt […]
Lokatölur: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta

Sjálfstæðisflokkurinn vann afgerandi sigur í bæjarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum og fær fimm bæjarfulltrúa af níu samkvæmt lokatölum. Miðflokkurinn verður næst stærsti flokkurinn með tvo fulltrúa og Eyjalistinn fær einnig tvo fulltrúa. Alls greiddu 2.649 atkvæði í kosningunum. Af þeim voru 84 auð og 12 ógild. Kjörsókn var 74,8% sem er mun dræmari kjörsókn en fyrir fjórum […]