Kíkt inn á kosningavökur framboðanna
Ljósmyndari Eyjafrétta heimsótti kosningavökur allra þriggja framboðanna laust fyrir miðnætti og tók púlsinn á stemningunni. Samsett mynd. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Spennan var farin að magnast verulega þegar fyrstu tölur höfðu verið kynntar og ljóst að úrslitin í bæjarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum væru að skýrast. Stuðningsmenn framboðanna fylgdust grannt með framvindunni á kosningavökum sínum þar sem fólk ræddi stöðuna, beið eftir næstu tölum og fylgdist með úrslitunum berast inn.

Kosningavaka Sjálfstæðisflokksins fór fram í Akóges, Miðflokkurinn hélt sína vöku í Alþýðuhúsinu og Eyjalistinn var með samkomu í Vöruhúsinu. Ljósmyndari Eyjafrétta leit við á öllum stöðunum laust fyrir miðnætti og fangaði stemninguna á meðan spennan hélt áfram að byggjast upp.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá kosningavökum framboðanna.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.