Kíkt í kosningakaffi framboðanna - myndir
Óskar Pétur Friðriksson kíkti við hjá öllum þremur framboðum bæjarins og fangaði stemninguna í kosningakaffinu. Mynd/samsett.

Það var líf og fjör víða um bæ í dag samhliða bæjarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum. Eftir að kjósendur höfðu greitt atkvæði sitt lögðu margir leið sína í hið sígilda kosningakaffi framboðanna þar sem boðið var upp á veitingar og spjall.

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, kíkti við hjá öllum þremur framboðum bæjarins og tók púlsinn á stemningunni.

Eyjalistinn tók á móti gestum í Líknarsalnum, Sjálfstæðisflokkurinn var með sitt kosningakaffi í Höllinni og Miðflokkurinn í Alþýðuhúsinu. Þar var fólk á ferðinni, stuðningsmenn ræddu stöðuna og margir nýttu tækifærið til að hitta frambjóðendur og samferðafólk áður en beðið er eftir fyrstu tölum síðar í kvöld.

Hér að neðan má sjá myndir frá heimsókn Óskars Péturs á milli kosningakaffihúsanna.

Nýjustu fréttir

Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.