
Nú erum við loksins eftir langa bið að nálgast eðlilegra ástand í samgöngumálum. Herjólfur farinn að ganga í Landeyjar milli lægða og stutt í að viðgerð geti hafist á skipinu eftir bilun í skrúfu. Á miðvikudag fer svo fram fundur með þingmönnum og ráðherra í Höllinni þar sem ræða á næstu skref í samgöngumálum okkar og því mikilvægt að við séum áfram á tánum.
Eftir lætin sem skapast í samfélaginu okkar þegar samgöngurnar eru í klessu virkar hið eðlilega og rétta ástand í samgöngum sem deyfilyf á tilfinningar reiði og gremju. Vandinn er hins vegar sá að það sem er bilað hefur ekki verið lagfært. Það er nefnilega gömul saga og ný að ekki aðeins náttúran gerir okkur erfitt fyrir heldur einnig mannanna verk og í sumum tilfellum aðgerðaleysi þeirra sem ráða.
Þeir sem lesið hafa þá samgönguáætlun sem liggur fyrir þinginu sjá að Vestmannaeyjar eiga ekki neinn stað í huga ráðherra málaflokksins, ríkisstjórnarinnar og þeirra sem vinna að stefnumótun í samgöngumálum hér á landi. Þar er ekki að finna plön um lagfæringar í Landeyjahöfn, nýjan Herjólf eða aukið jármagn til flugsamganga. Rétt er minnst á að ekki standi til að standa í vegi fyrir Eyjagöngum í sinni vegferð og ekkert er fjármagnið til þess verkefnis.
Pólitíkusarnir hér í Eyjum er sífellt að pönkast í ráðamönnum hvað þessi mál varðar og er það vel en það er ekki nóg. Við sáum að þegar að Vestmannaeyingar fá upp í kok myndast gríðarleg samstaða og fjöldi fólks tjáði sig með afgerandi hætti i fjölmiðlum og á samskiptamiðlum. Sumir tóku meira að segja upp símann og hringdu í ráðamenn. Þessi pressa hafði raunveruleg áhrif enda er það eðli pólitíkurinnar að bregðast við þegar allt fer í kalda kol. Þessari pressu má ekki linna nú þegar ástandið er orðið betra tímabundið. Við megum ekki gleyma að þeir sem starfa fyrir ríkið eru þar í okkar umboði og framfæri og því ekkert að því að ætlast til að það vinni vinnuna sína. Þess vegna hvet ég alla Vestmannaeyinga til að taka upp símann, skrifa, og láta í sér heyra svo að þeir sem halda utan um samgöngumálin okkar gleymi ekki verkefninu.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.