Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra

Ívar Karl Sigurðsson hefur tekið við stöðu verslunarstjóra Krónunnar í Vestmannaeyjum og hefur þegar hafið störf. Ívar hefur starfað hjá Krónunni í um átta ár og gegnt hinum ýmsu störfum innan fyrirtækisins. Hann hóf feril sinn í mjólkurkælinum í Krónunni í Mosfellsbæ og hefur byggt upp víðtæka reynslu af rekstri, þjónustu og daglegu starfi verslana. […]

Herjólfur slær met 

Árið 2025 var metár í starfsemi Herjólfs, bæði þegar kemur að farþegafjölda og flutningi farartækja. Framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., Ólafur Jóhann Borgþórsson, segir árið hafa gengið afar vel og horfur fyrir nýbyrjað ár vera jákvæðar. Spurður hvort þetta sé í takti við þá þróun sem hófst fyrir þremur til fjórum árum, þegar farið var að markaðssetja […]

Aglow samvera í kvöld

Aglow samvera verður í kvöld miðvikudaginn 4. febrúar kl. 19.30 í safnaðarheimili Landakirkju. Við áttum góðan fund í byrjun ársins og var eftirvænting og gleði meðal okkar. Við byrjum á því að fá okkur hressingu og eiga samfélag og syngjum svo saman. Þóranna er nýkomin af Aglow ráðstefnu, sem var haldin á Ítalíu, þar um […]

Suðurlandsslagur í Eyjum

Olís deild karla fer aftur af stað í dag eftir hlé og verða þrír leikir í kvöld. Selfoss kemur í heimsókn í Íþróttamiðstöðina í Vestmannaeyjum. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og ljóst að um sannkallaðan Suðurlandsslag er að ræða. Leikmenn ÍBV eru sagðir klárir í slaginn og allt bendir til þess að hart verði […]

Kröfu um gæsluvarðhald hafnað

Hraunb IMG 3125 2

Héraðsdómur Suðurlands hefur hafnað kröfu lögreglunnar á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir tveimur sem voru handteknir í gær í tengslum við andlát á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Frá þessu er greint á fréttavefnum mbl.is. Þar er haft eftir Jóni Gunnari Þórhallssyni, yfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á Suðurlandi að til standi að kæra niðurstöðuna til […]

„60 milljónir eru þeim ofviða“

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í ræðu undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag og sagði samgöngumál Vestmannaeyja enn vera í óviðunandi stöðu. Í ræðunni benti hann á að farþegaferjan Herjólfur sigli nú til Þorlákshafnar þar sem dýpið í Landeyjahöfn sé ekki nægjanlegt. Vestmannaeyingar þurfi að búa við það nánast á […]

Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði

Hluti af flota Vinnslustöðvarinnar í heimahöfn.

Breska sjávarútvegsblaðið Fish Focus heimsótti nýverið Ísland þar sem blaðamenn miðilsins kynntu sér íslenskan sjávarútveg, samfélög og fyrirtæki sem starfa í greininni. Í ferðinni var sérstök áhersla lögð á Vestmannaeyjar, þar sem sjávarútvegur hefur mótað atvinnulíf og mannlíf um áratugaskeið. Á vef Vinnslustöðvarinnar er stiklað á stóru úr umfjöllun blaðsins. Í ítarlegri umfjöllun blaðsins dvelur […]

Eyjamaðurinn: Elís Þór

Elís Þór Aðalsteinsson handboltamaður, íþróttamaður æskunnar eldri, er Eyjamaðurinn að þessu sinni. Aldur? 18 ára.  Fjölskylduhagir? Mamma (Katrín) og pabbi (Aðalsteinn), tvær systur Eva og Telma og síðan á ég líka hund.  Hvaða þýðingu hefur það fyrir þér að vera valin/valinn íþróttamaður æskunnar?   Það er heiður að fá að vera valinn íþróttamaður æskunnar og er ég þakklátur fyrir að hafa unnið það og hvetur mann til að gera en betur.  Hvernig er venjulegur dagur í þínu lífi?  Hann er oftast mjög svipaður: skóli-lyftingar-æfing og síðan reynir maður að slaka aðeins á.  Aðal áhugamál fyrir utan íþróttir? Að Ferðast getur verið veisla.  Síðasta hámhorfið? Absentia á Netflix (mæli með).  Hver er þín helsta fyrirmynd í íþróttum? Ómar Ingi Magnússon er mín helsta fyrirmynd.  Mottó? Þeir skora sem þora.  Hvert stefnir þú handboltanum? Ég stefni eins langt og hægt er.  Hvað óttast þú mest? Meiðsli.  Hvað hefur staðið upp úr á tímabilinu hingað til? Leikurinn á móti Aftureldingu í deild hefur staðið upp úr hingað til.  Hvaða þrjá einstaklinga tækir þú með á eyðieyju og af hverju? Ætli maður tæki ekki  Jón Gunnar fyrir fyrir góðan vinskap, Ólaf Má, alltaf stutt í grínið á þeim bæ og Birkir til að koma smá viti í þennan hóp.  Sturluð staðreynd um sjálfan þig? Nota hægri í allar íþróttir nema handbolta.  Hefur þú stundað aðrar íþróttir en handbolta? Já fótbolta, golf og sund.  Hvenær byrjaðir þú að æfa handbolta? Held ég hafi verið 5 ára.  Hvað er velgengni fyrir þér? Velgengni fyrir mér er þegar maður er búin að vera leggja mikið á sig og æfa vel og þegar þeir hlutir byrja að sýna sig […]

Miðflokkurinn býður fram í Eyjum

default

Miðflokkurinn hefur ákveðið að bjóða fram lista í Vestmannaeyjum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Ákvörðunin var tekin í framhaldi af fjölsóttum stjórnmálafundi flokksins í Eyjum fyrr á árinu og samkvæmt tilkynningu einnig vegna ákalls frá bæjarbúum. Kynning á frambjóðendum mun hefjast á næstu dögum, en jafnframt er áhugasamt fólk hvatt til að hafa samband við Miðflokksdeild Vestmannaeyja. […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.