Breyta skipulagi vegna uppbyggingar hótels og baðlóns
Mynd Baðlón Og Hótel á Skanshöfða
Nýtt deiliskipulag Skans og Skanshöfða gerir grein fyrir mannvirkjum og ákvæðum fyrirhugaðrar uppbyggingar á Skanshöfða sem felur í sér byggingu 4 hæða hótels með allt að 90 herbergjum og allt að 1.500 m2 baðlóns fyrir allt að 125 gesti ásamt veitingarstað.

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 14. maí 2025 að auglýsa, skv. skipulagslögum tillögu að breyttu aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 við Skanshöfða vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar baðlóns og hótels, ásamt umhverfisskýrslu. Einnig var samþykkt að auglýsa nýtt deiliskipulag Skans og Skanshöfða. Þetta segir í auglýsingu um skipulagsmál sem birt er á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar.

Breyting á aðalskipulagi gerir ráð fyrir nýjum landnotkunarreit verslunar og þjónustu (VÞ-2) við Skanshöfða þar sem áður var óbyggt svæði, ÓB-3, sem minnkar að sama skapi. Ákvæði VÞ-2 gera m.a. ráð fyrir hóteli og baðlóni.

Nýtt deiliskipulag Skans og Skanshöfða gerir grein fyrir mannvirkjum og ákvæðum fyrirhugaðrar uppbyggingar á Skanshöfða sem felur í sér byggingu 4 hæða hótels með allt að 90 herbergjum og allt að 1.500 m2 baðlóns fyrir allt að 125 gesti ásamt veitingarstað. Engin ný mannvirki eða byggingarreitir eru fyrirhuguð á Skansinum en gerð er grein fyrir skráðum minjum.

Meginmarkmið deiliskipulagsins er að stuðla að varðveislu núverandi menningar- og náttúruminja, samhliða uppbyggingu aðlaðandi svæðis fyrir útivist og nýs áfangastaðar á Heimaey.

Tillaga að deiliskipulagi er auglýst á tímabilinu 8. ágúst til 19. september 2025. Skipulagsgögn eru aðgengileg á skipulagsvefsjá Vestmannaeyjabæjar, í afgreiðslu Ráðhúss Vestmannaeyja og á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.

Ábendingum og athugasemdum við skipulagstillögurnar skal skila skriflega í afgreiðslu Ráðhúss Vestmannaeyja eða í gegnum skipulagsgátt  til og með 19. september 2025, segir í auglýsingu á vef Vestmannaeyjabæjar.

Nýjustu fréttir

„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.