Breytt fyrirkomulag sumarlokana leikskóla samþykkt

Á 310. fundi fræðsluráðs sem fram fór í gær, mánudag, kynnti fræðslufulltrúi niðurstöður úr þjónustukönnun leikskóla varaðandi sumarlokanir. Fór svo að afgerandi meirihluti eða 68,2% vildu breytt fyrirkomulag.

Í könnunni var boðið upp á þrjá kosti til viðbótar við óbrett fyrirkomulag.

  1. Kosið á hverju ári um tvö lokunartímabil.
  2. Lokað fyrstu þrjár vikur í júlí og val um tvær vikur þannig að leyfi barns verði 5 vikur samfellt.
  3. Fest verði tvö lokunartímabil sem verða til skiptis milli ára.

Fór svo að flestir þeirra sem vildu breyta fyrirkomulaginu eða 66,7% völdu kost tvö. 22,9% völdu þriðja kostinn en aðeins 10,5% kost eitt. Ráðið felur því skólaskrifstofu í samvinnu við skólastjórnendur leikskóla að skipuleggja sumarlokun leikskóla eftir þessum ábendingum.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.