Búið er að upplýsa innbrot á veitingastaðinn Conero. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum en tilkynnt var um innbrotið í gærdag. Þrír aðilar voru handteknir síðdegis í gær, grunaðir um innbrotið og við leit í húsnæði hjá einum þeirra, fannst mest af því áfengi sem tekið var í innbrotinu.