Búkollusteinn skal hann heita
Ráðhúströðin var áður opin frá Kirkjuvegi að Skólavegi. Nú hefur henni verið lokað við Alþýðuhúsið með steinum. Á facebooksíðunni �??Okkar Heimaey�?? er skemmtileg söguskýring og þar var uppákoma á fyrsta degi í goslokum:
�??Steinninn við Ráðhúströð hefur vakið nokkra undrun en hann hefur hlotið nafnið Búkollusteinn. �?annig er í pottinn búið að fyrir ári síðan var ákveðið að loka götunni að vestan. Auk þess var ákveðið að taka svæðið í gegn, setja niður tré og reisa tvær flaggstangir með nýjum fánum fyrir söfnin. Frágangur í kringum stakkstæði lagaður og hlaðveggur að norðan kláraður.
Lokunin sjálf var dregin úr hinni íslensku þjóðsögu af kunnugu kúnni Búkollu. En þannig var að Karlssonur og Búkolla flýja tröllskessur tvær og reyna í þrígang að hrista þær af sér með göldrum Búkollu og hári úr hala hennar. �?riðja og varanlega hindrun sögunnar var risastórt fjall er tröllskessurnar boruðu í og reyndu að troða sér í gegn en festust. Steinninn táknar því fjallið sem kemur í veg fyrir að tröllin (bílarnir) komast í geng. �?ess í stað geta þó gangandi vegfarendur skundað framhjá eins og Karlssonur og kýrin.
Steinninn hefur vakið mikla kátínu meðal yngstu aldurshópanna en þeir elska að stökkva í gegnum gatið. Verkið er tengt bókasafninu og er vonandi að hann veki áhuga á þjóðsögum og lestri.
Rétt eftir hádegi á fimmtudag var börnum beggja leikskóla boðið í sögustund við Sagnheima. Var sagan leikin og lesin ásamt því sem krakkarnir hengdu upp myndir er þeir höfðu teiknað upp úr sögunni og fá þær að vera á staðnum yfir helgina. En að sjálfsögðu fengu að lokum allir að skríða í gegn.
Strax í kjölfarið af þessari sögustund kemur skilti með sögunni af kúnni frægu á tveimur tungumálum.
.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.