Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 og U17 kvenna, hefur valið úrtakshópa sem munu æfa dagana 16. og 17. desember, en æfingarnar fara fram í Akraneshöll og Egilshöll. ÍBV á tvo fulltrúa í hópunum, Lindu Björk Brynjarsdóttir, sem mun æfa með U16, og Clöru Sigurðardóttir sem mun æfa með U17 þrátt fyrir að vera gjaldgeng með U16.