Dagur íslenskrar tungu í dag
Degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, verður nú fagnað í tuttugasta sinn. Efnt er til ýmissa viðburða undir merkjum hátíðisdagsins á mánudeginum 16. nóvember og dagana þar í kring. Hæst ber afhendingu Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar sem mennta- og menningarmálaráðherra afhendir á hátíðardagskrá í Bókasafni Mosfellsbæjar mánudaginn 16. nóvember kl. 16.00-17.00. Dagur íslenskrar tungu er opinber fánadagur.
Stóra og Litla upplestrarkeppnin í grunnskólum
Stóra upplestrarkeppnin fer nú af stað í tuttugasta sinn og hefst formlega á degi íslenskrar tungu. Í flestum skólum landsins er dagsins minnst með viðhöfn og víða koma eldri nemendur inn í bekki yngri barna og lesa upp sögur og ljóð, verðlaunahafar úr upplestrarkeppni síðasta árs lesa upp, ljóða- og smásagnasamkeppni, ljóð Jónasar Hallgrímssonar kynnt, íslenskir málshættir sérstaklega athugaðir og fleira mætti nefna.
Annað verkefni sem er sprotaverkefni frá þeirri Stóru er svo Litla upplestrarkeppnin í 4. bekk sem byggist á sömu hugmyndafræði en er sniðin að yngri nemendum. �?etta verkefni er að fara af stað í sjötta sinn hér í Hafnarfirði en var sl. vetur mjög víða á landinu eða í 60 skólum. Skýrslur varðandi þetta skemmtilega verkefni er að finna inni á heimasíðu Stóru upplestrarkeppninnar http://upplestur.hafnarfjordur.is og þar er að finna flest það sem tengist Litlu og Stóru upplestrarkeppninni.
Í tilefni af degi íslenskrar tungu 16. nóvember efnir Menntamálastofnun til vísnasamkeppni grunnskólanema, Vísubotn 2015, en þetta er fimmta árið í röð sem keppnin er haldin. Kveðskaparlist er merkilegur þjóðararfur sem vert er að halda á lofti og hvetja nemendur til að stunda. Í keppninni spreyta nemendur sig á því að botna fyrriparta sem að þessu sinni eru eftir Helga Zimsen. Um er að ræða tvo fyrriparta fyrir hvern aldursflokk á yngsta-, mið- og unglingastigi. Fyrir besta vísubotninn á hverju stigi verða veitt bókaverðlaun og viðurkenningarskjöl. Vonast er til að sem flestir skólar taki þátt í þessu verkefni. Hér má lesa um úrslit keppninar í fyrra.

Nýjustu fréttir

Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.