Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fer fram í dag og stendur kjörfundur, í Ásgarði, frá kl. 14 til 22. Utankjörfundar atkvæðagreiðslu lauk í gærkvöldi og nýtti fjöldi kjósenda sér utankjörfundar atkvæðagreiðsluna en samtals kusu 494 utankjörfundar.
Talning mun hefjast strax við lokun kjörfundar í kvöld og er vonast til að úrslit liggi fyrir upp úr kl. 01. Tölur úr talningunni munu verða birtar amk. tvisvar áður en lokatölur koma.
Efnt verður til prófkjörsvöku í Akógeshúsinu frá kl. 21 í kvöld en þar munu frambjóðendur og þeirra stuðningsmenn fylgjast með fréttum af talningu og er húsið opið fyrir þá sem áhuga hafa á að fylgjast með.
Tölur úr talningu verða lesnar í beinu streymi á Facebook síðu Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum og þar munu einnig birtast fréttir af framgangi talningar og aðrar upplýsingar. Lokatölur munu þó einungis verða lesnar upp í Akóges, en að sjálfsögðu munu úrslitin birtast á Facebook síðunni. Einnig munu allar tölur og upplýsingar verða birtar á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins xd.is .
Með prófkjöri gefur Sjálfstæðisflokkurinn, einn flokka í Eyjum, kjósendum kost á að stilla upp framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosniingarnar í vor og vonumst við eftir að kjósendur nýti sér þetta tækifæri ti lað hafa áhrif á hvernig framboðslistinn mun verða. Við vonumst því eftir góðri þátttöku í prófkjörinu í dag.
Kjörstjórn
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.