Dalur lét sig ekki fyrr en í fulla hnefana
Dalur var reisulegt hús. Í bakgrunni er fjölbýlishúsið sem mun ná að Kirkjuvegi.

Húsið Dalur sem byggt árið 1906 og var við Kirkjuveg 35 kvaddi í gær þegar stórtækar vinnuvélar réðust að því með kjafti og klóm. Þar lauk ákveðnum kafla í húsasögu Vestmannaeyja um leið og nýr er að hefjast. Víkur Dalur fyrir fjölbýlishúsi sem rís við Sólhlíðina. Óskar Pétur fylgdist með niðurrifinu og skráði með myndavélinni. Það gaf sig ekki fyrr en í fulla hnefana.

 

 

 

Frétt á eyjafrettir.is í gær

Upphaflega átti Dalur að víkja fyrir nýju fjölbýlishúsi sem Daði Pálsson og Sigurjón Ingvarsson eru að reisa við Sólhlíð. Átti að flytja það yfir gatnamótin þar sem Sólvangur stóð áður. Búið var að reisa grunninn en þegar til átti að taka var húsið svo illa farið að ekki var hægt að flytja það. Var byrjað að rífa það í morgun.

„Þetta er búið að taka allt of langan tíma en nú er niðurstaða komin,“ sagði Sigurjón í samtali við Eyjafréttir í dag. „Hús, 100 ára og eldri eru friðuð en Dalur hefur tekið miklum breytingum frá því það var byggt 1906. Austurgaflinn fauk af í kringum 1950 og við sjáum á dagblöðum milli þilja frá þeim tíma og í kringum 1940 að húsið hefur verið endurnýjað í gegnum tíðina. Einnig voru gerðar á því breytingar fyrir tíu árum.“

Sigurjón segir að auðvitað sé eftirsjá af húsinu en nýtt verði reist á Sólvangslóðinni. „Það verður byggt að mestu eftir sömu teikningu og mun uppfylla allar nútímakröfur sem gerðar eru til íbúðarhúsa í dag.“ sagði Sigurjón.

 

Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu: Árni Sigurðsson byggði húsið en þar hafa búið Guðrún BergsteinsdóttirMagnús ÞórðarsonOddur Sigurðsson og Lovísa MagnúsdóttirValur Oddsson um 1973, Kristján Þór KristjánssonÞorgeir Baldursson og Páll Heiðar Högnason.

Heimild Heimaslóð.

Nýjustu fréttir

Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í febrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.