Davíð Oddsson, fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins, borgarstjóri, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og síðast ritstjóri Morgunblaðsins varð bráðkvaddur á heimili sínu í gær, 1. mars. Davíð fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948.
„Með Davíð er horfinn af vettvangi einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu lýðveldisins og að mínu mati einn sá allra merkasti. Hann var leiðtogi af sjaldgæfri stærð, skýr í sýn, sterkur í sannfæringu og með hæfileika til að móta samfélagið með hugmyndum sínum og forystu,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins sem minnist Davíðs Oddsonar í færslu á Facebook í morgun. Hún segir tíðindin af andláti hans þung og sorgleg.
Hún segir tímabilið sem Davíð gegndi embætti fosætisráðherra, árin 1991–2004, af mörgum talið mesta blómaskeið lýðveldissögunnar.
„Fyrir okkur sjálfstæðismenn var hann meira en stjórnmálamaður. Hann var leiðtogi sem mótaði heila kynslóð,“ segir Guðrún.