
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Díönu Óskarsdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands til næstu fimm ára. Ákvörðun ráðherra er tekin að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana. Sex sóttu um stöðuna.
Díana er með BS gráðu í geislafræði, meistarapróf í lýðheilsuvísindum og hefur að auki stundað nám í stjórnun og rekstri á sviði heilbrigðisþjónustu. Frá árinu 2015 hefur hún gegnt starfi deildarstjóra á röntgendeild Landspítalans, samhliða lektorsstöðu við Háskólann í Reykjavík. Áður starfaði hún í sjö ár sem geislafræðingur hjá Hjartavernd auk þess að vera námsbrautarstjóri í lektorsstöðu við Háskóla Íslands í tíu ár. Díana hóf fyrst störf sem geislafræðingur árið 1990 og hefur frá þeim tíma meðal annars unnið á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Landspítalanum og hjá Geislavörnum ríkisins.
Í mati hæfnisnefndar segir meðal annars að Díana hafi haldbæra reynslu af stjórnun og mannauðsmálum, hún geti sýnt fram á góðan árangur í breytingastjórnun við krefjandi aðstæður, þekking hennar á starfsemi sjúkrahúsa sé haldgóð og að hún hafi góða innsýn í stjórnsýslu, auk haldbærrar reynslu af samskiptum við opinbera aðila og fjölmiðla.
Díana tekur við embættinu af Herdísi Gunnarsdóttur sem hefur veitt Heilbrigðisstofnun Suðurlands forstöðu síðastliðin fimm ár.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.