Díana Óskarsdóttir skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Starfsstöð Heilbrigðisstofnunnar Suðurlands í Vestmannaeyjum.
Díana Óskarsdóttir, nýskipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Díönu Óskarsdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands til næstu fimm ára. Ákvörðun ráðherra er tekin að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra  heilbrigðisstofnana. Sex sóttu um stöðuna.

Díana er með BS gráðu í geislafræði, meistarapróf í lýðheilsuvísindum og hefur að auki stundað nám í stjórnun og rekstri á sviði heilbrigðisþjónustu. Frá árinu 2015 hefur hún gegnt starfi deildarstjóra á röntgendeild Landspítalans, samhliða lektorsstöðu við Háskólann í Reykjavík. Áður starfaði hún í sjö ár sem geislafræðingur hjá Hjartavernd auk þess að vera námsbrautarstjóri í lektorsstöðu við Háskóla Íslands í tíu ár. Díana hóf fyrst störf sem geislafræðingur árið 1990 og hefur frá þeim tíma meðal annars unnið á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Landspítalanum og hjá Geislavörnum ríkisins.

Í mati hæfnisnefndar segir meðal annars að Díana hafi haldbæra reynslu af stjórnun og mannauðsmálum, hún geti sýnt fram á góðan árangur í breytingastjórnun við krefjandi aðstæður, þekking hennar á starfsemi sjúkrahúsa sé haldgóð og að hún hafi góða innsýn í stjórnsýslu, auk haldbærrar reynslu af samskiptum við opinbera aðila og fjölmiðla.

Díana tekur við embættinu af Herdísi Gunnarsdóttur sem hefur veitt Heilbrigðisstofnun Suðurlands forstöðu síðastliðin fimm ár.

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.