Donni, Kári og Elliði allir í 28 mann hóp
Kári og Elliði

Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið þá 28 leikmenn sem koma til greina á EM í janúar.

Eftirfarandi leikmenn eru í 28 manna hópnum:

Markmenn:
Aron Rafn Eðvarðsson Hamburg 84/6
Ágúst Elí Björgvinsson IK Sävehof 31/0
Björgvin Páll Gústafsson Skjern 221/13
Viktor Gísli Hallgrímsson GOG 9/0

Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson Lemgo 63/141
Guðjón Valur Sigurðsson PSG 356/1853
Oddur Grétarsson Balingen-Weilstetten 18/31

Vinstri skytta:
Aron Pálmarsson Barcelona 141/553
Elvar Ásgeirsson TVB 1898 Stuttgart 0/0
Ólafur Andrés Guðmundsson Kristianstad 115/215

Miðjumenn:
Elvar Örn Jónsson Skjern 26/80
Gísli Þorgeir Kristjánsson Kiel 23/31
Haukur Þrastarson Selfoss 12/15
Janus Daði Smárason Aalborg 37/41

Hægri skytta:
Alexander Petterson Rhein-Neckar Lowen 173/694
Kristján Örn Kristjánsson ÍBV 7/13
Teitur Örn Einarsson Kristianstad 18/18
Viggó Kristjánsson Wetzlar 2/3

Hægra horn:
Arnór Þór Gunnarsson Bergischer 105/311
Óðinn Þór Ríkharðsson GOG 13/42
Sigvaldi Björn Guðjónsson Elverum 20/37

Línumenn:
Arnar Freyr Arnarsson GOG 45/65
Elliði Snær Viðarsson ÍBV 6/4
Kári Kristján Kristjánsson ÍBV 137/162
Sveinn Jóhannsson SönderjyskE 7/14
Ýmir Örn Gíslason Valur 33/14

 

Varnarmenn:
Daníel Þór Ingason Ribe Esbjerg 30/9
Ólafur Gústafsson Kolding 43/48


 

Æfingar liðsins hefjast 22. desember nk. og mun landsliðið æfa hér heima milli jóla og nýárs og allt þar til það heldur til Þýskalands 3. janúar.  Þar munu strákarnir okkar leika gegn Þjóðverjum í Mannheim þann 4. janúar.

 

Eftir vináttuleikinn gegn Þjóðverjum kemur liðið aftur heim og æfir þar allt þar til liðið fer á EM þann 9. janúar. Fyrsti leikur liðsins á EM verður laugardaginn 11. janúar gegn Dönum í Malmö.

Alexander Petersson gefur kost á sér í landsliðið

Alexander Petersson, leikmaður Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi hefur ákveðið að gefa kost á sér að nýju í íslenska landsliðið í handknattleik.

Alexander er fæddur í Riga í Lettlandi (þá Sovétríkin) árið 1980, hann flutti til Íslands árið 1998 og fékk íslenska ríkisborgararétt 2003. Hann lék með íslenska landsliðinu frá 2005-2016, alls 173 landsleiki og skorað í þeim 694 mörk. Alexander var lykilmaður í liðinu sem vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Bejing 2008 og bronsverðlaun á EM 2010 í Austurríki. Árið 2010 var Alexander valinn íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttafréttamanna.

Alexander Petersson hefur leikið í þýsku úrvalsdeildinni frá 2003 og leikur í dag með Rein-Neckar Löwen.

 

 

Nýjustu fréttir

Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 
Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga
Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.