Edda María Birgisdóttir miðvallarleikmaður hefur verið lánuð til ÍBV frá Stjörnunni og mun leika með Eyjakonum í 1. deildinni í fótbolta í sumar. Edda María er með góða reynslu úr úrvalsdeildinni en þar hefur hún leikið með Fjölni og Stjörnunni. Hún lék 16 leiki í úrvalsdeildinni í fyrra og 18 leiki þar áður, en hefur aðeins náð sex leikjum í ár sem orsakast að hluta til af meiðslum.