Ef við töpum er eitthvað mikið að
Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, segir að mikilvægi leiksins gegn Víkingi í Pepsi deildinni í Vestmannaeyjum í kvöld sé gríðarlegt. Eyjamenn eru einungis með eitt stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar í deildinni og segir Eiður að nauðsynlegt sé að leggja nýliða Víkings af velli. �??�?að er bara að duga eða drepast, þetta er ekkert flóknara en það,�?? sagði Eiður Aron við Fótbolta.net.
Væri þunglyndur ef það væri ekki svona stutt á milli leikja
ÍBV var grátlega nærri því að taka stig gegn FH í Kaplakrika í síðustu umferð, en Atli Viðar Björnsson tryggði FH-ingum sigurinn á 96. mínútu. �??Við vorum alveg hundfúlir eftir síðasta leik. Við köstuðum þessu bara frá okkur, við vorum með stig í hendi en við klúðruðum því. �?etta var ekkert nema svekkelsi,�?? sagði Eiður, sem sagðist ekki hafa pælt í því hvort brotið hefði verið á �?skari �?skarssyni í aðdraganda marksins eða ekki.
�??Sem betur fer er stutt á milli leikja núna, annars væri maður bara þunglyndur miðað við hvernig þetta hefur byrjað hjá okkur. �?etta hefur bara verið hræðilegt, við erum búnir að tapa tveimur leikjum og gera eitt jafntefli úti á landi. En sem betur fer getur maður strax farið að einbeita sér að næsta leik,�?? sagði Eiður, sem er mjög ósáttur með að ÍBV hafi tapað fyrstu tveimur heimaleikjum sínum á Hásteinsvelli.
�??�?etta á náttúrulega að vera okkar gryfja hérna. Lið eiga ekkert að koma og sækja sigur hérna, sem hefur því miður gerst tvisvar, en það er bara undir okkur komið að sýna hversu öflugur þessi völlur getur verið fyrir okkur,�?? segir Eiður.
Vonar að stuðningsmenn handboltaliðsins fari að mæta á leiki
Hann telur að ÍBV muni berjast í botnbaráttu allt tímabilið ef liðinu tekst ekki að taka stigin þrjú í kvöld.
�??�?g held að þetta verði leikur sem segir til um það hvar við ætlum að vera í töflunni í ár, hvort við ætlum að vera í einhverjum skít þarna á botninum eða gera eitthvað af viti. �?að er alveg klárt að ef við vinnum ekki þennan leik á morgun, þá er eitthvað mikið að hjá okkur, það er bara svoleiðis,�?? segir Eiður, en Eyjamenn hafa þó ekki kastað inn hvíta handklæðinu.
�??�?að þýðir ekkert að fara að leggjast í gólfið og fara að grenja strax. �?að eru bara fjórir leikir búnir og 18 leikir eftir, það er nóg eftir.�??
Handboltalið ÍBV varð Íslandsmeistari í fyrsta skiptið á dögunum og hefur stemningin í Vestmannaeyjum verið með ólíkindum í kringum það. Eiður vonar að fótboltaliðið fái svipaðan meðbyr.
�??�?að hefur verið frábær stemning hér í Eyjum með handboltaliðinu og alger snilld hjá þeim að taka titilinn. Nú er bara að vona að stuðningsmannasveit þeirra, Hvítu Riddararnir, fari að láta sjá sig á leikjum hjá okkur,�?? sagði Eiður.
Viðtalið birtist á Fótbolti.net

Nýjustu fréttir

Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.