Í framhaldi þess að meirihluti bæjarstjórnar Vestmannaeyja hafnaði tillögu minnihlutans um að taka upp
frístundakort til að niðurgreiða tómstundaiðkun barna um 25.000 krónur spurðu Eyjafréttir.is Elliða Vignisson, bæjarstjóra, hvort tillögunni hafi verið hafnað vegna þess að hún var eitt aðal kosningamál Eyjalistans. �??Heildarrekstrarútgjöld Vestmannaeyjabæjar eru um 4 milljarðar. Tillaga Eyjalistans um frístundakort er mál upp á 16 milljónir eða sem sagt 0,4% af rekstrinum. Án þess að ég hafi sérstaklega sett mig inn í kosningabaráttu Eyjalistans þá efast ég um að 0,4% af rekstrinum hafi verið aðal kosningamál þess góða fólks sem stóð að E-listanum,�?? segir Elliði.
Bæjarstjóri segir enn fremur að tillagan hafi verið felld vegna mikillar óvissu í tekjuáætlun Vestmannaeyjabæjar. �??Okkur þótti einfaldlega ekki forsvarandi að auka útgjöld til íþrótta- og tómstundamál um 16 milljónir á meðan ráðist er í niðurskurð upp á 62 milljónir,�?? segir Elliði.
Elliði segir að í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun sé stefnt að hagræðingu um 1,5% af heildarrekstri samstæðu eða rúmlega 62 milljónir, þetta sé minnihlutanum kunnugt um. �??Slíkt er ekki gert af léttúð heldur illri nauðsyn. Að öðru óbreyttu myndi samþykkt á tillögu minnihlutans leiða til þess að fara þyrfti í niðurskurð upp á um 78 milljónir. Slíkt hefði að mati okkar í meirihlutanum í för með sér sársaukafullar aðgerðir fyrir þjónustuþega Vestmannaeyjabæjar. Minnihlutinn benti sannarlega á leiðir til að draga úr rekstri eins og með því að draga úr viðhaldi á húsnæði, draga úr viðhaldi gatna og sleppa uppbyggingu á skólalóðum. �?ví vorum við ekki sammála. �?á lagði oddviti E-lista fram tillögu um að þetta yrði fjármagnað með því að taka hærra hlutfall af launum bæjarbúa. �?ví vorum við heldur ekki sammála enda það trú okkar að launþegar eigi sjálfir að halda sem mestu af launum sínum frekar en að stjórnmálamenn séu að seilast í sem hæst hlutfall til að deila síðan til baka til fólksins. Með hliðsjón af þessari stöðu hafnaði meirihlutinn tillögunni, að minnsta kosti þar til sýnt verður fram á að rauntekjur komandi árs verði umfram það sem nú hefur verið áætlað,�?? segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.