Fyrstu lotu var að ljúka í 3. og 4. flokki karla og kvenna í handbolta HBStatz hefur tekið saman hvaða leikmenn hafa verið iðnir við að skora það sem af er vetri. HBStatz er samstarfsaðili HSÍ og er innsláttar- og greiningarkerfi fyrir tölfræði í handbolta. Kerfið er hugsað fyrir þjálfara, fjölmiðla og handboltaáhugafólk almennt.
ÍBV á tvo fulltrúa á lista þeirra markahæstu. Andri Erlingsson er í fjórða sæti yfir markaskorara í 3. flokki karla með 49 mörk í 5 leikjum eða 9,8 mörk að meðaltali í leik. Hin unga og efnilega Agnes Lilja Styrmisdóttir er markahæst í 4. flokki kvenna með 52 í 5 leikjum eða 10,4 mörk að meðaltali í leik í vetur. Agnes hefur verið fastamaður í meistaraflokksliði ÍBV í vetur og skorað 10 mörk í jafn mörgum leikjum.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.