ÍBV íþróttafélag og Eimskip skrifuðu nú um helgina undir 5 ára samstarfssamning. Samningur þessi er mjög mikilvægur fyrir ÍBV og rennur hann óskiptur til barna og unglingastarfs félagsins. ÍBV hefur á síðustu mánuðum lagt mikinn metnað í að styrkja barna- og unglingastarfið og létta undir með foreldrum sem eru með börn í íþróttum hjá félaginu.