Eitt blað brotnaði og þrjú löskuðust á bakborðsskrúfu Herjólfs við það að rekast í vestari hafnargarðinn við Landeyjahöfn á laugardag. Jafnframt er stýrið lítillega snúið bakborðsmegin. Í Morgunblðinu í dag kemur fram, að gert verður við þrjú blaðanna en skipt um hið fjórða. Vegagerðin átti blaðið til og standa væntingar til þess að viðgerð taki 5-6 daga.