Heitasti dagur sumarsins en engin met
Góða veðrið hefur leikið við Eyjamenn síðustu daga. Göngumessu sunnudagsins lauk á Skansinum þar sem sólin skein. Mynd Óskar Pétur.

Heitasti dagur sumarsins í Vestmannaeyjum var í gær. Komst hitinn á Stórhöfða í 19,4 gráður kl. 13.00 í sól og hægum vindi. Hlýtt var allan daginn og var hitinn 16 og yfir 18 gráður. Ekki er um met að ræða. Það var sett á Stórhöfða 30. júlí 2008 þegar hitinn komst í 21,6 gráður. Mælingar á Stórhöfða ná aftur til ársins 1921 og áður hefur hiti leikið um Eyjamenn því árið 1924 komst hiti á Stórhöfða í 21,2 gráður.

Spá næstu daga er hagstæð þó ekki verði sól alla daga. Þá er vert að geta þess að hiti í Vestmannaeyjabæ er yfirleitt hærri en á Stórhöfða.

Nýjustu fréttir

Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis
Dýpkuðu 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn
Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.