Vestmannaeyjabær óskaði eftir áframhaldandi ríkisstyrktu flugi til Vestmannaeyja í tvær vikur, en svar frá Innviðaráðuneytinu barst í gær. Þar kemur fram að ekki sé fjárhagslegt svigrúm til að framlengja verkefnið um tvær vikur til viðbótar.
Norlandair gerði samning við Vegagerðina um rekstur flugleiðarinnar til Vestmannaeyja til loka febrúar 2026. Samningurinn var síðan framlengdur út mars, en nú er honum lokið.
Bæjaryfirvöld greindu frá þessu í dag og lýstu yfir miklum vonbrigðum, enda hefur staðan í Landeyjahöfn verið erfið og haft áhrif á samgöngur.