Á þriðjudagsmorgun var opnað fyrir sölu á ferðum með Herjólfi í kringum þjóðhátíð. Fljótlega upp úr því höfðu óánægðir viðskiptavinir samband við ritstjórn Frétta og sögðu farir sínar ekki sléttar, þar sem strax var orðið uppselt í allar ferðir á fimmtudegi og föstudegi fyrir verslunarmannahelgina og einnig eftir helgina. Einn viðskiptavinur hafði hringt strax klukkan níu um morguninn, verið númer tíu í bið en þegar kom að honum var orðið uppselt.