Ekki horft í krónuna hjá ríkinu
Stærsti hluti greiðslnanna hefur runnið til Juris lögmannsstofu, ríflega 91 milljón, en liðlega 5 milljónir voru greiddar teiknistofunni Landformi vegna kortavinnu.

„Kostnaður ríkisins vegna aðkeyptrar lögfræðiþjónustu vegna þjóðlendukrafna fjármála- og efnahagsráðherra á svæði 12 sem reknar hefur verið fyrir Óbyggðanefnd og tekur til eyja og skerja hér við land nemur alls rúmum 96 milljónum króna, en heildarkostnaður við kröfugerðina er 192,4 milljónir og eru þó ekki öll kurl komin til grafar enn,“ segir frétt Morgunblaðsins í dag.

Segir að þetta komi fram í svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Bergþórs Ólasonar alþingismanns Miðflokksins.

Stærsti hluti greiðslnanna hefur runnið til Juris lögmannsstofu, ríflega 91 milljón, en liðlega 5 milljónir voru greiddar teiknistofunni Landformi vegna kortavinnu.

Þá er ótalinn kostnaður Vestmannaeyjabæjar og annarra sveitarfélaga sem þurfa að grípa til varna vegna kröfu ríkisins sem ásælist allar úteyjar Vestmannaeyja og gott betur.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.