Elvar Ingi Vignisson hefur skrifað undir þriggja ára samning við ÍBV en hann kemur til félagsins frá Fjarðabyggð.
Elvar Ingi er tvítugur sóknar- og kantmaður. Hann lék alla 22 leiki Fjarðabyggðar í 1. deildinni í sumar og skoraði fjögur mörk. Hann er uppalinn í Aftureldingu og lék með liðinu í fjögur ár í 2. deild þar sem hann skoraði 9 mörk í 22 leikjum árið 2014.
Elvar Ingi er þriðji leikmaðurinn sem ÍBV fær til sín eftir að Bjarni Jóhannsson var ráðinn þjálfari, en áður hafði félagið fengið þá Pablo Punyed frá Stjörnunni og Halldór Pál Geirsson frá KFS.