Engin loforð en hvergi slegið af kröfum
�??Fundurinn tókst í alla staði vel. Hann sóttu um 80 manns og til viðbótar hafa um 1400 manns horft á fundinn á netinu en hann var sendur út í gegnum Facebooksíðu Vestmannaeyjabæjar. Við lögðum á það áherslu að eiga einlægt og opið samtal um forsendur sem við höfum unnið út frá, útskýra stöðuna og næstu skref. Við lögðum á borðið hverju við vinnum að og vonum að fólk sýni því skilning að við erum ekki að lofa neinu heldur bara að segja frá því hverjar okkar ítrustu kröfur eru,�?? sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri eftir kynningarfundinn á laugardaginn í Eldheimum og lagði áherslu á að langt sé frá því að nokkuð sé klappað í stein.
Fundinn sátu Lúðvík Bergvinsson, lögmaður, Páll Guðmundsson, útgerðarstjóri Hugins, Yngvi Harðarson, framkvæmdastjóri Analitca sem skipa stýrihóp sem unnið hefur að yfirtöku Vestmannaeyjabæjar á Herjólfi fyrir svörum. Fulltrúar bæjarins voru Elliði og Stefán �?skar Jónasson, oddviti minnihlutans í bæjarstjórn. Grímur Gíslason, framkvæmdastjóri Atlas, sem á sæti í stýrihópnum hafði ætlað að mæta en var fastur við störf úti í Póllandi.
Lúðvík, sem hafði orð fyrir stýrihópnum sagði að fundurinn hefði fyrst og fremst verið hugsaður til að koma á framfæri upplýsingum og til að eiga gott samtal við bæjarbúa um framtíð ferjusiglinga, nú þegar von er á nýrri ferju um mitt næsta ár og samningaviðræður við ríkið eru að hefjast.
�??Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur um nokkurt skeið verið þeirrar skoðunar að endurmeta verði þær forsendur sem rekstrarstyrkur ríkisins vegna ferjusiglinga Herjólfs eru grundvallaðar á. �?að er mat bæjarstjórnar að ferjusiglingar séu �??lífæð�?? Eyjanna, í þeim skilningi að íbúar og fyrirtæki eiga mikið undir því að þjónustustig Herjólfs sé hátt og verð fyrir þjónustu ferjunnar taki raunverulega mið af því að ferjusiglingar koma í stað stofn- eða tengivega sem öll samfélög njóta.
�?á markast samkeppnishæfni Vestmannaeyja varðandi það að keppa um að fá til sín fólk og fyrirtæki að stórum hluta af því að samgöngur og verðlagning þeirra sé ásættanleg og samkeppnishæf. �?ví verður að líta á ferjusiglingar við Eyjar sem hluta af uppbyggingu innviða samfélagsins og þær séu reknar sem almannaþjónustu. Ferjusiglingarnar Herjólfs eru því hin raunverulega lífæð Eyjanna í því umhverfi sem sveitarfélög búa við í dag. �?etta er útgangspunktur bæjarstjórnar í málinu,�?? sagði Lúðvík.

Nýjustu fréttir

Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.