Engir styrktartónleikar og lokaður Herjólfsdalur skilyrði brennunnar

Fundur var haldinn í bæjarráði núna kl. 13.00 vegna hertra reglna um samkomutakmarkanir og nálægðarmörk sem kynnt voru í morgun. Kom bæjarráð saman til þess að ræða leyfisveitingar og samkomur í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina.

„Nú er ljóst að töluverð fjölgun hefur orðið á innanlandssmitum af völdum kórónuveirunnar undanfarna örfáa daga og stjórnvöld tekið ákvörðun um að herða reglur um samkomur og nálægðarmörk. Þegar bæjarráð tók ákvarðanir um tækifærisleyfi og aðra viðburði fyrr í vikunni var það gert eftir samráð við lögreglustjórann í Vestmannaeyjum, sýslumanninn í Vestmannaeyjum, slökkvistjóra og eftir fund almannavarnarnefndar með Víði Reynissyni hjá embætti ríkislögreglustjóra. Það er því ekki þannig að umsagnir hafi verið afgreiddar umhugsunarlaust eins og ýjað hefur verið að í einum fjölmiðli í Vestmannaeyjum. Engar upplýsingar lágu þá fyrir um ógnina eða hertar reglur sem nú blasir við vegna fjölgunar tilfella Covid-19 smita.

Í ljósi þessara nýju tíðinda, sem og hertra samkomutakmarkanna stjórnvalda er brýnt að bæjarbúar og fyrirtæki fari að tilmælum almannavarna, landlæknis og sóttvarnarlæknis til að hægja á útbreiðslu faraldursins og gæti sín sérstaklega vel yfir verslunarmannahelgina. Gætt skal að tveggja metra reglunni og að samkomur miðast við 100 manns.

Skipuleggjandur styrktartónleika, sem til stóð að halda á laugardagskvöldið, hafa afturkallað umsóknina og ákveða að aflýsa tónleikunum. Jafnframt hefur Björgunarfélag Vestmannaeyja, sem hafði sent inn umsókn um blystendrun í Herjólfsdal, dregið umsókn sína til baka. Auk þess hafa allir þeir forsvarsmenn fyrirtækja sem sóttu um tækifyrisleyfi um verslunarmannahelgina, þ.e. 900 grills, Kráarinnar og Brothers Brewery, ákveðið að afturkalla umsóknir sínar. Hafa allir þessir aðilar með því sýnt samfélagslega ábyrgð. Þá hefur bæjarráð ákveðið að setja skilyrði um lokun Herjólfsdals fyrir umferð fólks ef leyfi verður veitt fyrir brennunni á Fjósakletti föstudagskvöldið 31. júlí nk.

Varðandi opnunartíma og starfsemi stofnana bæjarins vegna nýrra takmarkana stjórnvalda munu forstöðumenn hlutaðeigandi stofnana senda tilkynningar þess efnis, þ.e. um Íþróttamiðstöðina, þ.m.t. sundalaugina og söfn bæjarins.

Bæjarráð vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem standa í framlínunni við að takast á við hina aðsteðjandi ógn og hvetur bæjarbúa og gesti til þess að snúa bökum saman og takast í sameiningu á við ástandið. Ítrekað er mikilvægi persónubundinna sóttvarna. Vestmannaeyingar hafa sýnt að þegar mest liggur við er samheldni og samstaða okkar sterkasta vopn.“

Nýjustu fréttir

Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.