Baráttan um sameiginlegar auðlindir Íslendinga heldur áfram. Næsta auðlind til þess að verða hrægömmunum að bráð er makríllinn. Nú krefjast hagsmunaaðilar þess að þeim verði úthlutaður (lesist gefinn) kvóti í makríl upp á 130.000 tonn. Þetta skal gerast endurgjaldslaust og kvótum skal úthlutað ótímabundið eins og venja er þegar nytjastofnum Íslands er rænt af þjóðinni. Þarna er ekki um nein smá verðmæti að ræða. Makríll er mjög verðmætur nytjafiskur og hugsanlegt er að verð á varanlegum kvóta gæti verið á bilinu 500 til 1.000 krónur á kílóið. Þannig að verðmætin sem nú stendur til að ræna af þjóðinni gætu verið á bilinu 65 til 130 milljarðar króna!