ÍBV hefur fengið til sín á reynslu enska leikmanninn Jonathan Barden. Hann er 22 ára gamall leikmaður sem leikur á miðjunni. Hann hefur undanfarin ár leikið með liði háskólans James Madison University í Bandaríkjunum.
Hann kom til landsins í dag og mun æfa með liði ÍBV næstu daga í Eyjum.