Sverrir Hermannsson, eigandi Hring hótels segir ekki rétt að samstarfssamningur liggi fyrir um rekstur hótels sem fyrirhugað er að byggja í Hásteinsgryfju. „En ég hef rætt við þá aðila sem ætla að reisa Hótel Heimaey og það liggja fyrir drög að samstarfssamningi. Forsenda þess að hægt sé að undirrita slíkan samning, er að lóðinni verði úthlutað og hægt verði að hefja framkvæmdir. Ég er ekki að fara leggja til fé í hótelið en er mjög spenntur fyrir því að reka það, eins og hugmyndin er,“ sagði Sverrir í samtali við Eyjafréttir.