Karlalið ÍBV í knattspyrnu lék sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum í gær en leikið var gegn Val í Egilshöll. Bjarni Gunnarsson skoraði eina mark leiksins á markamínútunni, þeirri 43. ÍBV og Valur eru í 3. riðli A-deildar ásamt Haukum, Selfoss, Stjörnunni, Víkingi �?, Víkingi R og KV. Haukar, Selfoss og ÍBV eru öll með þrjú stig eftir fyrstu umferðina en Stjarnan og Víkingur 1.