Eyjamenn með sigur í fyrsta leik
Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

Karlalið ÍBV sigraði HK naumlega 30-29 í fyrstu umferð Olís deildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld. Eyjamenn voru með yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn og voru yfir 15-11 í hálfleik.

Eyjamenn voru áfram með stjórnina á leiknum í síðari hálfleik en þegar hálfleikurinn var rúmlega hálfnaður náði HK að saxa á forskotið. Þegar tæpar fimm mínútur voru eftir af leiknum jafnaði HK leikinn og staðan orðin 28-28. Síðustu mínúturnar voru æsispennandi og fengu HK tækifæri til að jafna leikinn þegar skammt var til leiksloka en ruðningur dæmdur á Hauk Inga Hauksson. Lokatölur því 30-29 fyrir ÍBV. 

Markahæstur í liði Eyjamanna var Dagur Arnarsson með sjö mörk.

Marka­hæst­ur í leikn­um var Hauk­ur Ingi Hauks­son með átta mörk.

Pet­ar Jokanovic varði 11 skot í marki ÍBV.

Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 7/5, Elís Þór Aðalsteinsson 6, Ívar Bessi Viðarsson 4, Hinrik Hugi Heiðarsson 3, Sveinn Jose Rivera 2, Daníel Þór Ingason 2, Anton Frans Sigurðsson 2, Andri Erlingsson 2, Jakob Ingi Stefánsson 1, Sigtryggur Daði Rúnarsson 

Næsti leikur ÍBV er heimaleikur gegn Stjörnunni föstudaginn 12. september kl. 18:30.

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.