Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Hákon Daði Styrmisson snéri aftur í Olís deildina. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV tók á móti Selfyssingum í 16. umferð Olís deildar karla í Eyjum í kvöld. Leiknum lauk með stórsigri heimamanna, 40-28. ÍBV náði forystunni strax í upphafi leiks og eftir stundarfjórðung voru Eyjamenn komnir með sex marka forystu. Staðan í hálfleik, 18-11.

Eyjamenn héldu sama dampi í síðari hálfleik og Selfyssingar sáu í raun aldrei til sólar. Eyjamenn sigruðu að lokum með 12 marka mun. Lokatölur leiksins, 40-28. 

Sveinn José Rivera, leikmaður ÍBV, var atkvæðamestur í leiknum og skoraði sjö mörk. Hákon Daði Styrmisson var að leika sinn fyrsta leik fyrir Eyjamenn eftir að hann snéri aftur heim og skoraði sex mörk. Petar Jokanovic átti frábæran leik í liði Eyjamanna og var með 16 skot varin. Morgan Goði Garner varði fimm skot. 

Elís Þór Aðalsteinsson snéri aftur á völlinn eftir meiðsli og skoraði fjögur mörk. Róbert Sigurðsson, Ísak Rafnsson og Sigtryggur Daði Rúnarsson voru allir fjarverandi vegna meiðsla. 

Eftir leikinn er ÍBV í 6. sæti með 19 stig á meðan Selfoss er í 10. sæti með 9 stig. 

Mörk ÍBV: Sveinn josé Rivera 7 mörk, Andri Erlingsson 6, Hákon Daði Styrmisson 6, Elís Þór Aðalsteinsson 6, Dagur Arnarsson 3, Haukur Leó Magnússon 3, Kristófer Ísak Bárðarson 3, Daníel Þór Ingason 2, Ívar Bessi Viðarsson 2, Anton Frans Sigurðsson 1, Egill Oddgeir Stefánsson 1, Garðar Benedikt Sigurjónsson 1, Heimir Halldór Sigurjónsson 1.

Tveir aðrir leikir fóru fram í Olís deild karla í kvöld. KA sigraði ÍR, 37-31 og leik FH og HK lauk með 32-29 sigri FH. Umferðin klárast á morgun.

Eyjamenn fara næst í Hafnarfjörðinn og spila gegn Haukum, sunnudaginn 8. febrúar kl. 16:00.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.