Karlalið ÍBV steinlá í fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum en í dag lék liðið gegn úrvalsdeildarliði Vals. Lokatölur urðu 6:0 en ÍBV spilar aftur í sömu keppni gegn úrvalsdeildarliði Breiðabliks sunnudaginn 3. mars klukkan 14.00 í Kórnum. Breiðablik burstaði Grindavík í dag 5:1.