Eyjamenn hefja síðari umferð Íslandsmótsins á því að taka á móti Fram í dag klukkan 14.00 á Hásteinsvelli. Framarar unnu Eyjamenn í fyrsta leik Íslandsmótsins á Laugardalsvellinum, 2:0 en síðan þá hefur ÍBV aðeins tapað einum leik. Frömurum hefur ekki gengið sem skyldi í síðustu leikjum Íslandsmótsins, þrjú jafntefli og tap í síðustu umferð gegn FH. Á meðan gengur ÍBV allt í haginn en síðast lögðu Eyjamenn Keflavík að velli á Hásteinsvellinum.