ÍBV endar í fimmta sæti ef marka má árlega spá forráðamanna liðanna í Pepsídeild karla. FH-ingar endurheimta Íslandsmeistaratitilinn og ótrúlegt en satt, þá er nýliðum deildarinnar, Þór og Víkingi spáð falli. KR er spáð öðru sæti og Íslandsmeistarar Breiðablik enda í þriðja sæti samkvæmt spánni, sem má sjá í heild sinni hér að neðan.