Kvennalið ÍBV er komið með aðra löppina upp í úrvalsdeild eftir glæsilegan 0:4 sigur á Keflavík í dag. Leikurinn var sá fyrri af tveimur í undanúrslitum 1. deildar en sigurvegari einvígisins vinnur sér sæti í úrvalsdeild næsta sumar. Liðin mætast á nýjan leik næsta miðvikudag á Hásteinsvelli.