Fært niður á óvissustig
Vatnsleidsla_Bakka.jpg
Fram kemur í bréfi bæjarstjóra að Vestmannaeyjabær hafi enga innlausnarskyldu á vatnsveitunni, enda ef svo væri myndu HS Veitur hf. eflaust halda því fram í sínu bréfi sem ekki er gert.

Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna skemmda á þeirri lögn sem flytur vatn til neyslu og húshitunar í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Almannavarna.

Þegar hættustigi var lýst yfir 29. nóvember 2023 lá umfang tjóns ekki fyrir en við skoðun komu í ljós verulegar skemmdir á um 300 metra kafla lagnarinnar. Hætta er á að lögnin fari í sundur með þeim afleiðingum að rof verður á afhendingu vatns til Vestmannaeyja, til lengri tíma.

Unnið hefur verið að margvíslegum mótvægisaðgerðum, bæði til að styrkja vatnslögnina og efla viðbragðsgetu til að halda hitaveitu gangandi þótt lögnin fari í sundur. Bakbein þess viðbragðs eru fjórar RO vélar (Reverse Osmosis Water Filtration System) sem gera kleift að vinna neysluhæft vatn úr jarðsjó sem yrði dælt inn á dreifikerfi HS Veitna. Umræddar vélar, ein hver, eru í eigu Vinnslustöðvarinnar hf., Ísfélagsins hf., Laxey ehf., og Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Þá hafa verið gerðar ýmsar viðbragðsáætlanir þar sem aðgerðastjórn lögreglustjórans í Vestmannaeyjum stýrir aðgerðum og viðbragði, m.a. um flutning drykkjarvatns til Vestmannaeyja, að tryggja órofna starfsemi mikilvægra innviða auk stuðnings við viðkvæma hópa.

Bæjarstjórn Vestmannaeyja, í góðri samvinnu við samstarfs- og hagaðila, vinna áfram að framtíðarlausn og afhendingaröryggi á flutningi vatns til Vestmannaeyja, segir að endingu í tilkynningunni.

https://eyjar.net/lysa-yfir-haettustigi-almannavarna-i-eyjum/

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.