N.k. laugardag 3. nóv. kl. 11.00 verður haldinn fundur í Ásgarði félagsheimili sjálfstæðismanna við Heimatorg. Þar mun ég, frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir prófkjörið 26. janúar nk., ræða um framboð mitt, helstu áherslur og stefnumál. Málflutningur minn sem bæjarstjóra í Garði um atvinnumál á Suðurnesjum og Suðurlandi hefur vakið athygli á síðustu misserum og árum.