Nú er svo komið að ég get ekki lengur orða bundist. �?g er að springa, ekki bara vegna þess að ég er komin 36 vikur á leið og mér finnst ég bókstaflega geta sprungið á hverjum degi en aðallega af því að ég er að springa úr reiði og vonbrigðum. Reiði í garð þeirra frambjóðenda sem ég lagði allt mitt traust á, þeirra frambjóðenda sem ég var viss um að myndu forgangsraða rétt, myndu styrkja grunnþjónustu landsbyggðarinnar allrar.