Eyjafréttir sendi fulltrúum Vegagerðarinnar og framkvæmdastjóra Sæferða fyrirspurn varðandi þær sögusagnir að ný ferja sem verið er að smíða væri of þung og yrði því lengd. Vegagerðin gaf í kjölfarið frá sér þessa yfirlýsingu.
�??Skipasmíðastöðin CRIST S.A. í Póllandi hefur lagt til að lengja nýju Vestmannaeyjaferjuna um 1,8 metra og breyta stefninu. Með því móti tekst að halda djúpristunni innan þeirra marka sem að var stefnt.
Við þessar breytingar verður aðstaða fyrir farþega betri og ferjan getur flutt fleiri fólksbíla að jafnaði. �?essar breytingar eru verkkaupa að kostnaðarlausu en verða þess valdandi að afhending dregst eitthvað. �?essi tillaga skipasmíðstöðvarinnar er enn til skoðunar hjá samgönguráðuneytinu og Vegagerðinni. Ákvörðun verður tekin fljótlega.
�?að eru gerðar afar stífar kröfur um djúpristu nýju Vestmannaeyjaferjunnar til að auðvelda siglingar í Landeyjahöfn. �?að þýðir að það er fylgst vel með þyngd ferjunnar og stöðugleikanum og gripið til ráðstafana ef frávik verður. Að mati skipasmíðastöðvarinnar verður ferjan að óbreyttu of þung og því leggur hún til að lengja nýju ferjuna lítillega og breyta stefninu.
Samkvæmt útboði á að skila ferjunni tilbúinni í júlí árið 2018 en komi til þessa gæti það orðið síðsumars í staðinn.�??
Við erum þreytt á þessum töfum
Elliði Vignisson bæjarstjóri sagði í útvarpsþættinum Bítinu í gær að auðvitað værum við orðin þreytt á töfum á afhendingu nýrrar ferju. �??�?etta hefði kannski ekki átt að koma á óvart, enda mjög algengt að tafir verði á afhendingu, þannig við hefðum geta verið undirbúin undir að þetta gæti gerst.
Lykilatriðið fyrir okkur er hversu gott skipið verður þegar það loksins kemur, en ég dreg ekki úr því að það er vont fyrir okkur að missa sumarið 2018 út. En það er hægt að bregðast við því með öðrum hætti eins og að fjölga ferðum núverandi Herjólfs, til að tryggja að við lendum ekki í sömu stöðu og við höfum verið að lenda í hvert einasta sumar eins og að hráefni skemmist af því það kemst ekki á milli og að fólk komist ekki til síns heima.
�?að skiptir því máli að bregðast við þessari stöðu,�?? sagði Elliði.