Fjárhagsáætlunin var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum
11. desember, 2018

Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja fyrir helgi fór fram síðari umræða um fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Íris Róbertsdóttir gerði grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2019 frá fyrri umræðu. Við umræðu um málið tóku einnig til máls: Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Trausti Hjaltason, Guðmundur Ásgeirsson, Helga Kristín Kolbeins, Elís Jónsson og Njáll Ragnarsson.

Bæta þjónustu við unga jafnt sem aldna í sveitarfélaginu
Bókun frá bæjarfulltrúm E-lista og H-lista. Vel rekið sveitarfélag sýnir ábyrga fjármálastjórn og veitir íbúum eins góða og skilvirka þjónustu og kostur er fyrir þá fjármuni sem eru til ráðstöfunar á hverjum tíma. Jafnframt er þess gætt að stilla álögum á gjaldendur í hóf. Eins og fram kom í framsögu bæjarstjóra við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun lögðu fulltrúar E og H lista til að hlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði verði lækkað úr 0,35 í 0,33. Þetta er gert til að mæta þeim hækkunum sem orðið hafa á fasteignamati íbúðarhúsnæðis milli 2018 og 2019 þannig að álögur á gjaldendur hækki ekki á milli ára. Í fjárhagsáætlun er sömuleiðis gripið til margháttaðra aðgerða til að bæta þjónustu við unga jafnt sem aldna í sveitarfélaginu. Má þar nefna hækkun á aldursviðmiði frístundastyrks í 18 ár; aukið fjármagn í stoðþjónustu leik- og grunnskóla; heilsueflingu eldri borgara; bætta akstursþjónustu fatlaðra; lengdan opnunartíma sundlaugar og útisvæðis; aukna áherslu á æskulýðs- og íþróttastarf m.a. með nýju stöðugildi og svona mætti áfram telja. Allt þetta miðar að því að bæta lífsgæði og auka ánægju þeirra sem hér búa og að nýta tekjur sveitarfélagsins á ábyrgan hátt til þjónustu við bæjarbúa. Guðmundur Ásgeirsson(sign) Njáll Ragnarsson (sign) 1541. fundur Bæjarstjórnar Vestmannaeyja Vestmannaeyja 829 Íris Róbertsdóttir (sign) Elís Jónsson (sign)

Niðurfellingu fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði hjá ellilífeyisþegum
Tillaga frá bæjarfulltrúum D-lista um niðurfellingu fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði hjá ellilífeyisþegum 70 ára og eldri. Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að áfram verði felldur niður fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði hjá ellilífeyrisþegum 70 ára og eldri líkt og gert hefur verið undanfarin ár. Niðurfellingin nær til alls fasteignaskatts en sem fyrr verða áfram greidd þjónustugjöld af eignunum. Ekki verður þörf á að sækja um niðurfellinguna heldur kemur hún sjálfvirkt inn við álagningu. Í samræmi við vilja hagsmunasamtaka eldri borgara fer Vestmannaeyjabær ofangreinda leið með það að markmiði að auðvelda eldri borgurum að búa sem lengst í eigin húsnæði. Þá er með þessu einnig reynt að mæta að hluta þeirri tekjuskerðingu sem eldri borgarar verða fyrir við starfslok. Það er mat Sjálfstæðisflokksins að í þessu sé bæði falin mannvirðing og aukið valfrelsi í húsnæðismálum auk ákveðinnar hagræðingar þar sem aðgerðin dregur úr þörf fyrir önnur mjög kostnaðarfrek húsnæðisúrræði.

Tillagan var felld með fjórum atkvæðum bæjarfulltrúum H-lista og E-lista gegn þremur atkvæðum bæjarfulltrúum D-lista. Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Trausti Hjaltason, Helga Kristín Kolbeins, Njáll Ragnarsson og Íris Róbertsdóttir gerðu grein fyrir atkvæði sínu. Bókun: Bæjarfulltrúar meirihluta ítreka fyrri bókanir sínu um þetta mál úr bæjarráði og bæjarstjórn og vill að sveitarfélagið fari ávallt að lögum um afslátt af skattheimtu. Leitað verði leiða til að veita afslátt sem nýtast öllum eldri borgurum 67 ára og eldri með löglegum hætti. Sú vinna er í gangi hjá starfsmönnum Vestmannaeyjabæjar. Guðmundur Ásgeirsson (sign) Njáll Ragnarsson (sign) Íris Róbertsdóttir (sign) Elís Jónsson (sign)

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma að tillaga þeirra um niðurfellingu fasteignagjalda á eldriborgara hafi verið felld og auka eigi álögur á eldri borgara samkvæmt fjárhagsáætlun þar sem meirihluti H- og E- lista hefur einhliða fallið frá áralangri hefð niðurfellingu fasteignagjalda á íbúa 70 ára og eldri. Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign) Trausti Hjaltason (sign) Helga Kristín Kolbeins (sign) Bókun.

Mikil óvissa ríkir um þjóðarbúskapinn fyrir árið 2019
Ábyrg fjármálastjórnun hefur verið aðalsmerki Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum og er að mati bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins án efa forsenda að framþróun og vexti samfélagsins. Skynsamar ákvarðanir m.a. við sölu á hlut bæjarins í Hitaveitu Suðurnesja, uppgreiðslu erlendra lána og sífelldu aðhaldi í rekstri hafa skapað forsendur til möguleika á bættri þjónustu, að draga úr álögum á íbúa og stofna til nýframkvæmda sem eru til þess fallnar að bæta aðstöðu og upplifun íbúa og gesta Vestmannaeyjabæjar. Mikil óvissa ríkir um þjóðarbúskapinn fyrir árið 2019. Hagstofa Íslands hefur uppfært verðbólguspá sína úr 2,9% í 3,6% og er það í takt við spár greiningardeilda bankanna. Að auki gætir töluverðrar óvissu í sjávarútvegi, grunnatvinnuvegi samfélagsins sem getur haft gríðarleg áhrif á tekjur sveitarsjóðs. Mikill titringur er á hinum almenna vinnumarkaði og óljóst hvernig það mun hafa áhrif á samninga við opinbera starfsmenn í framhaldinu. 1541. fundur Bæjarstjórnar Vestmannaeyja Vestmannaeyja 830 Dæmin sanna jafnframt að það getur tekið skamman tíma að snúa hagfelldri rekstrarlegri stöðu bæjarfélags við og þurrausa sjóði þess og því ítreka bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins mikilvægi þess að stíga varlega til jarðar og að við upptöku nýrra stöðugilda og aukningu útgjalda séu fundnar hagræðingarleiðir á móti til að koma í veg fyrir þenslu og útgjaldaaukningu samfélagsins sem að endingu er tekin beint úr vösum skattgreiðenda, Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna því að tillögur þeirra 1. Lækkun fasteignaskatts 2. Skoðun á fýsileika við stækkun Hamarsskóla 3. Að frístundastyrkur verði veittur til 18 ára aldurs hafi náð fram að ganga og að mörg þau góðu verk sem Sjálfstæðisflokkurinn í góðu samstarfi við Eyjalistann kom á laggirnar á síðasta kjörtímabili fái áfram að dafna. Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign) Trausti Hjaltason (sign) Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign)

Elís Jónsson forseti bæjarstjórnar bar upp lykiltölur í fjárhagsáætlun ársins 2019: Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs Vestmannaeyja 2019: Tekjur alls: 3.984.814.000 Gjöld alls fyrir fjármagnsliði: 4.017.022.000 Rekstrarniðurstaða, jákvæð: 76.729.000 Veltufé frá rekstri: 545.591.000 Afborganir langtímalána: 25.177.000 Handbært fé í árslok: 548.110.000
Fjárhagsáætlun B-hluta bæjarsjóðs Vestmannaeyja 2019: Rekstarniðurstaða Hafnasjóðs, jákvæð: 54.672.000 Rekstrarniðurstaða Fráveitu, jákvæð: 31.417.000 Rekstarniðurstaða Félagslegra íbúða: 0 Rekstarniðurstaða Vatnsveitu: 0 Rekstrarniðurstaða Hraunbúða: 0 Rekstarniðustaða Vetm.ferj. Herjólfs ofh: 26.472.000 Veltufé frá rekstri: 235.207.000 Afborganir langtímalána: 30.179.000
Fjárhagsáætlun samstæðu Vestmannaeyja 2019: Tekjur alls: 6.282.826.000 Gjöld alls: 6.190.717.000 Rekstarniðurstaða, jákvæð: 189.290.000 Veltufé frá rekstri: 780.798.000 Afborganir langtímalána: 55.356.000
Handbærtfé í árslok: 548.110.000

Fjárhagsáætlun 2019 var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum. Helga Kristín Kolbeins og Íris Róbertsdóttir gerðu grein fyrir atkvæðum sínum.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.